Fjármálafréttir

pglogo Það hefur nú dregið til tíðinda í fjárhagsstöðu klúbbsins þar sem Parket og Gólf hefur verið sannfært um að styrkja strákana með dágóðu fjárframlagi.  Erum við þá að tala um ca. 100 þúsund krónur sem fara í að borga þáttökugjaldið í Carlsbergdeildinni og upp í búningakaup og merkingar á þeim.  Sem betur fer eru meðlimir í Hasselhoff svona upp til hópa slugsar í að borga þær upphæðir sem beðið er um og við því bara tveir sem vorum búnir að borga.  Hilmar var búinn að leggja inn 6.700 krónur á mig og ég var búinn að borga 15.000 í staðfestingargjaldið.  Við þurfum að fá verð í merkingarnar á búningunum til að sjá hvað hver og einn þarf að borga, en það verður tölvuert minna en 6.700 (+4000 f. búning).  Spurning hvort við tékkum þá ekki á því hvað myndi kosta að prenta P&G lógó framan á búninginn og nafn og númer aftaná?


3-1 fyrir marglitum

Já og það styttist í lok tímabilsins og kannski gaman að rifja upp gömul úrslit

Smá upprifjun yfir lokastöður fyrri ára...

05/06 fyrir áramót
1. Hannes 37
2. Danni 23
3. Binni 19

05/06 eftir áramót
1. Bjössi 25
2. Mundi 16
3. Gunni 14

06/07 fyrir áramót
1. Diego 27
2. Hilmar 22
3. Gunni 19

Leyfi mér að fullyrða að ef Gunni vinnur í næsta tíma þá sé hann svo gott sem búinn að tryggja sér bikarinn þetta tímabilið... gaman að loks nái einn af hinum "upprunalegu" að vinna  Smile


Carlsbergdeildin

Jæja...

Hvet nú menn til að kíkja inn á http://www.carlsbergdeildin.net en þar er búið að setja inn riðlana og leikjaskipulag.

Við eigum fyrsta leik 3. maí kl. 19.00 á móti Hvatberum.

Ég ætla að leyfa mér að gera ráð fyrir að við náum 12 manna hópi fyrir sumarið.  Ef við reiknum með 12 manns þá þarf hver og einn að borga 6.700 kr. fyrir þáttökuna.  Heildar gjaldið er 80.000 og ég er búinn að borga staðfestingargjaldið sem er 15.000 af því og fæst endurgreitt ef við mætum í alla leiki - eigum þá 15.000 í lok sumars. 

Þeir sem ætla að vera með þurfa að vera búnir að borga 6.700 kr. fyrir þann 19. apríl

inn á 1150-05-477110, kt. 111077-3049

Ef menn vilja vera með en sjá ekki fram á að geta borgað fyrir þennan tíma, þá láta mig vita (tímanlega) og ég redda þeim fram til 02. Maí... ekki degi lengur!


2-"0" fyrir grænum

kem með stigatöflu í næsta tíma...

Sannur Hasselhoff

Myndir segja meira en mörg orð ...

 freysi


2-0 eða 1-0 man það ekki

Allaveg töpuðu grænir í gærkvöldi...

Fyrsti skipti í langan tíma sem við spilum 5 á móti 5... verð að segja að það kallar á mun skemmtilegri tíma.  Ekki bara sparkað og hlaupið heldur þarf actually að spila boltanum LoL.

Jáms...


Þvílíkt

Já það eru þvílíkar undirtektir við öllu sem maður setur hérna inn Angry.

Annars var ég að spá hvort menn vildu reyna að fá æfingaleik við einhverja sem verða í Carlsbergdeildinni í sumar.  Það væri þá hægt að gera það annaðhvort í tímanum okkar (spila þá 5 á 5) eða á laugardegi eða sunnudegi einhversstaðar úti.

Áhugi ?

FC Boot Camp var að auglýsa eftir æfingaleik... reyndar á sunnudaginn Woundering býst ekki við að okkar menn verði í góðu formi þá.

Áhugi ?

Við köstum svo upp á í hvoru liðinu Binni og Kiddi verða á fimtudaginn.  Skiptir svosem ekki máli þar sem um 2 baráttujaxla er að ræða.


2-1 fyrir grænum

úje...

Eftir mjög svo slaka byrjun hjá grænum... töpuðum 5-0 þá komum við sterkir til baka og unnum næstu 2 leiki nokkuð sannfærandi (5-1 og 5-3). 

Ég er búinn að borga staðfestingargjaldið fyrir Carlsbergdeildina (15.000) þannig að við erum ekki að missa sætið okkar, er víst mikil ásókn í að komast þarna að.

Hef ekki haft tíma til að kíkja meira á búningamál... nóg að gera.  En endilega komið með uppástungur ef ykkur dettur einhver annar staður en Jói Útherji í hug til að kaupa búningana.


Í formi?

Jæjans... hvernig væri að við myndum nú taka okkur saman í andlitinu og hlaupa saman 1 - 2 sinnum í viku?  Reyna að koma mönnum í smá form ef við ætlum okkur að endast 2 * 25 mínútur í Carlsberg deildinni í sumar.  Hverjir eru til og hvenær myndu þeir hinir sömu vilja hafa hlaupin?

Hringdi í Jóa Útherja áðan og þeir eru með Prostar búninga (bolur, buxur, sokkar) á 4000 - 6000 kr. stk. eftir hvað maður tekur.  Fer og kíki á þetta hjá þeim á eftir.  Eruði með einhverja fleiri staði sem hasselhofflogoég get tékkað á verðum?

Og hvernig gengur að hanna logoið okkar?  Eru ekki allir á fullu að vinna í hugmyndum? 

Skelli inn einu hérna til gamans.


4-0 fyrir marglitum

... gott mál og fyrsta sætið er mitt aftur Cool

Ég var nú að browsa netið og leita að einhverjum myndum sem sýna Baywatch uniformið... þessir menn eru bara alltaf berir að ofan...

En ég fann þessa þar sem Hoffinn er góður við voffa :

Hoffinn

og svo er þetta eina myndin sem ég fann af Baywatch manni í stuttbuxum og stuttermabol...

th_BayWatch2

En búningarnir okkar verða semsagt eitthvað í þessa veru... hvítur bolur, rauðar stuttbuxur og rauðir sokkar?

laters


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hasselhoffinn

FC Hasselhoff
Gunni er Hasselhoffinn
Vor 2007

Staðan

Styrktaraðili

Breiðholtsskóli

1. Gunni 7
2. Mundi 7
3. Maggi 6
4. Hilmar 4
5. Biggi 2
6. Binni 2
7. Kiddi 2
8. Tóti 2
9. Tumi 2
10. Valli 2
11. Ómar 0
12. Óskar 0

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband