28.9.2006 | 11:16
Liðsuppstilling
Nú er alltaf hægt að nálgast liðsuppstillingar hérna til vinstri undir "Síður"
Annars þakka ég fyrir þokkalegt geym á laugardaginn... mætingin bara sæmileg á heildina litið, vantaði bara nýju mennina og Binna smala.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2006 | 10:31
Jafntefli í gærkvöld.
Já það var hart barist í Breiðholtinu í gær. Marglitir sýndu óneitanlega mun meiri grimmd og ákveðni í fyrri leiknum og unnu verðskuldaðan sigur þá. Grænir komu svo heppnari til baka í seinni leiknum og einhvern vegin duttu inn 5 mörk og sigurinn var í höfn. Gunni átti án efa mark vikunnar þar sem hann skoraði beint úr aukaspyrnu nánast frá miðju með þrumu skoti, svona Alonso mark . Lítil breyting verður því á uppstillingu næsta tíma, Binni og Diego skipta einfaldlega um lið.
Svo var tekin þessi frábæra hópmynd... hópurinn minnir nú óneitanlega á ákveðinn sjónvarpsþátt sem er í gangi á Sýn núna.
Partý á laugardag í Mosfellsbænum... ætla ekki að setja heimilisfangið hérna svo það fari ekki að streyma að óvelkomnir aðdáendur klúbbsins. Spurning hvenær menn vilja mæta? Ég er að slípa gólf í Borgarnesi en stefni á að vera kominn í bæinn aftur fyrir kl. 16.00... þannig að við gætum byrjað snemma og horft á Reading - Man. Utd sem byrjar kl. 16.15, ef það er einhver áhugi fyrir því þ.e.a.s.
Látiði bara í ykkur heyra !
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.9.2006 | 12:34
Uppstilling kveldsins
Sæti | Grænir | Hinir | Sæti |
1 | Gunni | Hilmar | 2 |
4 | Binni | Diego | 3 |
6 | Mundi | Freysi | 5 |
8 | Óskar | Valli | 7 |
10 | Tóti | Maggi | 9 |
Hvernig væri svo að setja í kommentin hvort þið viljið partý á laugardaginn eða ekki
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2006 | 09:30
Hópmynd ...
Jæja, þetta er nú svo myndarlegur hópur hjá okkur að ég bara verð að taka hópmynd og skella á vefinn . Þannig að ef menn gætu verið mættir og komnir í gallana 10 mínútum áður en tíminn byrjar næsta fimtudag þá væri það flott... Spurning um að fá Mr. Hasselhoff til að mæta
.
Voru menn svo sáttir við að hafa smá gleðskap á laugardaginn næsta? Ég myndi bjóðast til að halda þetta ef menn nenna að koma upp í Mosó, just say the word. En ef þið nennið því ekki þá þurfum við annan samastað - einhverjir sjálfboðaliðar?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.9.2006 | 10:20
Reikningurinn
... er kominn í hús og er gjalddagi 01.10.2006 og ég ætlast til að allir verði búnir að leggja inn á mig 5.550 kr. fyrir þann tíma!!!
Reikningur - 1150-05-477110, kt. 111077-3049 - 5.550 kr.
Reikningurinn er semsagt upp á 55.500 kr. (fyrir þá sem eru ekki nógu sleipir í reikningi)
Annars unnu marglitir í síðasta tíma og aðeins 2 menn á toppnum með fullt hús stiga eftir fyrstu umferð, uppfæri stöðuna á eftir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.9.2006 | 08:36
Uppstilling kveldsins...
Sæti | Grænir | Hinir | Sæti |
1 | Binni | Gunni | 2 |
4 | Valli | Hilmar | 3 |
6 | Óskar | Diego | 5 |
8 | Maggi | Freysi | 7 |
10 | Tóti | Mundi | 9 |
Kíkiði svo á snillinginn Hasselhoff
Svona lítur þetta út fyrir kvöldið! Er einhver búinn að finna vestin í óhreina tauinu heima hjá sér?? Ef ekki þá þurfiði að leita betur. Og Freysi þú kannski tékkar á the three amigos, Hannesi, Bjössa og Danna - hvort þeir hafi blessuð vestin. Ef þau verða ekki komin í leitirnar fyrir kvöldið þá þurfa þeir sem eru merktir sem grænir að mæta í dökku og við hinir í einhverju ljósu. Annars verða grænir berir að ofan
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.9.2006 | 09:27
Lagersala
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2006 | 15:02
Excel skjalið góða
Stöðuskjalið fylgir hér með Er svo í framtíðinni hægt að nálgast það efst í stöðulistanum hérna vinstra megin...
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2006 | 09:18
Fyrsta tíma lokið
Þá er veturinn loks kominn, fyrsti tími hjá FC Hasselhoff er að baki!
Ekki varð úr að nota liðsuppstillinguna sem átti að vera þar sem enginn veit hver er með vestin og ákveðið var að raða mönnum saman eftir lit á bolum. Dökkir skíttöpuðu eftir að hafa skorað fyrsta mark tímabilsins, og var það auðvitað ég sem skoraði með þrumuskoti neðst í hægra hornið með vinstri fæti... Auðvitað má láta fylgja sögunni að dökkir voru einum færri og því kannski ekki skrítið að leikurinn hafi tapast .
Hvernig líst mönnum svo á að hafa smá start of season teiti þann 23. sept, þar sem það gleymdist að hafa lokahóf síðast?
Annars lítur tímabilið vel út, en okkur vantar enn tíunda mann... þið megið finna hann ásamnt vestunum okkar.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.9.2006 | 15:24
1. Liðsuppstilling
Sæti | Grænir | Hinir | Sæti |
1 | Binni | Freysi | 2 |
4 | Hilmar | Gunni | 3 |
6 | Tóti | Mundi | 5 |
8 | Nýr 1 | Valli | 7 |
10 | Nýr 3 | Nýr 2 | 9 |
Ég veit ekkert um þessa nýju en...
Nýr 1 = Hilmars maður
Nýr 2 = Tóta maður
Nýr 3 = Aukamaður sem Tóti kemur með í kvöld
Hver sem er með vestin má muna eftir þeim !!!
Update:
Benedetto er hættur við að ganga til liðs við FC Hasselhoff. Þótti honum hann verðskulda betri grunnlaun og leist ekkert á fjárhagsstöðu FC Hasselhoff. Hann hefur því róið á önnur og "betri" mið. Hilmar reynir að redda manni fyrir kvöldið, en þetta þýðir að okkur vantar enn einn framtíðarmann !
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Staðan
Styrktaraðili

Breiðholtsskóli
2. Mundi 7
3. Maggi 6
4. Hilmar 4
5. Biggi 2
6. Binni 2
7. Kiddi 2
8. Tóti 2
9. Tumi 2
10. Valli 2
11. Ómar 0
12. Óskar 0
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar